Málstofa 19. nóvember: Úthafshringiða stjórnar loftslagi og vistkerfum sunnan við norðurskautið

Málstofa 19. nóvember: Úthafshringiða stjórnar loftslagi og vistkerfum sunnan við norðurskautið

Hjálmar Hátún haffræðingur hjá færeysku hafrannsóknastofnuninni mun flytja erindið: Úthafshringiða stjórnar loftslagi og vistkerfum sunnan við norðurskautið
Góðir gestir frá Vopnafirði og Reykjanesbæ

Góðir gestir frá Vopnafirði og Reykjanesbæ

Það koma oft góðir gestir í höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5, en þeir voru óvenju skemmtilegir, hressir og fróðleiksfúsir krakkarnir frá Vopnafjarðarskóla og Háleitisskóla í Reykjanesbæ sem heimsóttu bæði höfuðborgina og Hafnarfjörðinn í tilefni af „First Lego League Challenge 2024“ keppninni sem fram fer á morgun laugardaginn 16. nóvember í Háskólabíói.
Doktorsnemi í sjávarlíffræði óskast

Doktorsnemi í sjávarlíffræði óskast

Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða doktorsnema til starfa við rannsóknir í sjávarlíffræði í verkefni sem snýr að þáttum sem hafa áhrif á meðafla sjávarspendýra og fugla í fiskveiðum við landið. Staðan er til 4 ára.
BioProtect verkefnið auglýsir eftir svæðisbundnum styrkjum

BioProtect verkefnið auglýsir eftir svæðisbundnum styrkjum

BioProtect verkefnið auglýsir eftir fimm svæðum til að þiggja styrki upp á allt að 100.000 evrur hvert, sem og tæknilega aðstoð til að innleiða og bæta svæðisbundin stjórnunarverkfæri, sem þróuð eru af verkefninu sjálfu.
Brennihvelja (l. Cyanea capillata)

Ný grein um áhrif marglytta á fiskeldi

Grein sem birt var nýlega í vísindatímaritinu Aquaculture Environment Interactions nýlega, sýnir fram á að marglyttur geti valdið fiskdauða og efnahagslegu tjóni hjá fiskeldisfyrirtækjum, jafnvel löngu eftir að marglytturnar eru farnar frá svæðinu.
Ert þú hæfileikaríkur hugbúnaðarsérfræðingur?

Ert þú hæfileikaríkur hugbúnaðarsérfræðingur?

Hafrannsóknastofnun leitar að reyndum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi til að styrkja uppbyggingu, viðhald og framþróun upplýsingakerfa stofnunarinnar. Við leitum að liðsmanni sem verður hluti af öflugu hugbúnaðarteymi sem vinnur saman að úrlausn fjölbreyttra verkefna, þvert á svið stofnunarinnar.
Cecilie Hansen

Opin málstofa fimmtudaginn 31. október

Cecilie Hansen, rannsakandi frá norsku hafrannsóknastofnunni (Havforskingsinstituttet), verður með erindi á málstofu Hafrannsóknastofnunar fimmtudaginn 31. október kl. 12.30. Erindi hennar, sem flutt verður á ensku ber heitið: 'The effect of climate change, fisheries management and invasive species on the ecosystem in the Barents and Nordic Seas - explored by using an Atlantis end-to-end model'. Málstofan verður haldin í fundarsal höfuðstöðva Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og á Teams. Öll eru velkomin. 9 'The effect of climate change, fisheries management and invasive species on the ecosystem in the Barents and Nordic Seas - explored by using an Atlantis end-to-end model'
Ný bók um Atlantshafsþorskinn

Ný bók um Atlantshafsþorskinn

Út er komin bókin Líffræði og vistfræði Atlantshafsþorsks á vegum CRC Press. Dr. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur á Hafrannsóknastofnun er meðal ritstjóra og höfunda bókarinnar en einnig koma fjórir aðrir sérfræðingar stofnunarinnar að skrifum tveggja kafla.
30% aukning á fjölda stangveiddra laxa milli ára

30% aukning á fjölda stangveiddra laxa milli ára

Bráðabirgðasamantekt Hafrannsóknastofnunar sýnir að heildarfjöldi stangveiddra laxa árið 2024 var um 42.400 fiskar, sem er um 30 % aukning frá árinu 2023 og um 2% undir meðalveiði áranna 1974 - 2023.
Sýnataka undir þokuboga á Þingvallavatni.

Innbyrðis sveiflur einstakra svifþörungategunda í Þingvallavatni

Nýlega kom út skýrsla, þar sem fram kemur samantekt á niðurstöðum vöktunar á svifþörungum í Þingvallavatni á 10 ára tímabili, á árunum 2015–2024. Í skýrslunni kemur fram að vöktunin hafi leitt í ljós að þótt magn svifþörunga fylgi í stórum dráttum árstíðabundinni kúrfu, sjást miklar innbyrðis sveiflur í magni einstakra tegunda milli ára.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?