Ný grein um áhrif marglytta á fiskeldi

Brennihvelja (l. Cyanea capillata) Brennihvelja (l. Cyanea capillata)

Grein sem birt var nýlega í vísindatímaritinu Aquaculture Environment Interactions nýlega, Detached tentacles of lion’s mane jellyfish Cyanea capillata can injure aquaculture fish, sýnir fram á að marglyttur geti valdið fiskdauða og efnahagslegu tjóni hjá fiskeldisfyrirtækjum, jafnvel löngu eftir að marglytturnar eru farnar frá svæðinu.

Hlaupkennt dýrasvif veldur fiskdauða 

Hlaupkennt dýrasvif (marglyttur og skyldar lífverur) getur valdið fiskdauða og efnahagslegu tjóni fyrir fiskeldisfyrirtæki þar sem stingfrumur í örmum þess getur sært og jafnvel drepið fisk í kvíum. Þó viðbúnaði gegn marglyttusvörmum (e. Jellyfish blooms) sé í auknum mæli beitt, hefur ekki verið horft til áhrifa frá örmum marglytta sem geta auðveldlega slitnað af og fljóta þá um. Þessir fljótandi armar með virkum stingfrumum, geta sært fisk jafnvel eftir að marglyttusvarminn er farinn frá svæðinu, en óvíst var hversu lengi. Í þessari rannsókn var metið með óbeinum hætti hversu lengi þessir armar brennihvelju (l. Cyanea capillata), geta mögulega sært fisk í kvíum eftir að þeir losna frá marglyttunum sjálfum.

Tilraunir í Sandgerði og í Eyjafirði

Tilraunirnar voru gerðar í tilraunastöð HÍ í Sandgerði í eldistönkum, með örmum sem voru klipptir af brennihveljum sem var safnað í Eyjafirði síðsumars. Armarnir og þar með stingfrumurnar héldu fullri getu til að fanga saltvatnsrækjur Artemia salina í 24 daga, og geta því sært fisk í kvíum í þann tíma. Armarnir hættu síðan að geta veitt bráð frá 26. degi og síðar.

Eftir því sem næst verður komist eru þetta fyrstu vísindalegu vísbendingarnar sem sýna hversu lengi stingfrumur í gripörmum eru virkar eftir að þær slitna frá marglyttunum og þannig mögulega skaðað fisk í eldi. Mikilvægt er að hafa þessar upplýsingar í huga við áhættumat og hönnun á viðbúnaði við marglyttum í kringum fiskeldi.

Greinina má finna hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?