Frá heimsókn ráðherra. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.
Þann 7. desember fengum við hjá Hafrannsóknastofnun góðan gest, þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Svandís Svavarsdóttir heimsótti stofnunina ásamt ráðuneytisstjóranum Benedikt Árnasyni, Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur, skrifstofustjóra og Iðunni Garðarsdóttur, aðstoðarmanni Svandísar.
Gestirnir fóru um borð í rannsóknaskipið Árna Friðriksson, skoðuðu húsið og heilsuðu upp á starfsmenn Fornubúða 5.
Að því loknu var fundað með Framkvæmdastjórn þar sem kynntur var reksturinn og helstu verkefni sem Hafrannsóknastofnun sinnir, ásamt því að fara yfir áskoranir næstu ára.
![Ráðherra á tali við Guðmund Þórðarson mynd með færslu](/static/files/2021-frettir/02heimsokn.jpg)
Svandís Svavarsdóttir og Guðmundur Þórðarson ræða saman.