Hrognkelsi öflugri sundfiskur en áður var talið

Vísindin efla alla dáð og krefjast stundum merkinga sem þessarar. Vísindin efla alla dáð og krefjast stundum merkinga sem þessarar.

Í grein sem birtist nýlega í Journal of Fish Biology kemur í ljós að tvö hrognkelsi (Cyclopterus lumpus), sem merkt voru austur af Íslandi, syntu 1510 km og 1612 km til Danmerkur til að hrygna. Ekki var vitað áður að hrognkelsi syntu svo langar vegalengdir.

Hrognkelsi, sem voru merkt í Irmingerhafi voru endurheimt hér við land, sýna að hrognkelsi sem hrygna við Ísland nýta Irmingerhaf sem fæðuslóð. Í greininni kemur einnig fram að Noregshaf er sameiginlegt fæðusvæði fyrir nokkra mismunandi stofna hrognkelsa.

Hrognkelsi syndi langar vegalengdir á milli fæðuslóðar að sumarlagi á hafi úti og hrygningarstöðva 

Á meðan á rannsókninni stóð, yfir sex ára tímabil, voru 2750 hrognkelsi merkt í Irmingerhafi við Ísland og í Noregshafi. Þar af endurheimtust 17 fiskar. Fjórir þeirra veiddust aftur í meira en 1.000 km fjarlægð frá merkingarstað, sem sýnir að það er algengt að hrognkelsi syndi langar vegalengdir á milli fæðuslóðar að sumarlagi á hafi úti og hrygningarstöðva við ströndina vorið eftir.

Kort af merkingum hrognkelsa (svartir punktar) og endurheimtarstöðvum (rauðir punktar) sem merktir voru í alþjóðlegri vistkerfisumarkönnun á Norðurhöfum.

Í rannsókninni kemur ennfremur fram að hrognkelsi, sem voru merkt í Irmingerhafi og norður af Íslandi, veiddust aftur við Ísland, en engir þeirra fiska sem voru merktir í Noregshafi endurheimtust við Ísland. Þessi munur á heimtuhlutföllum á mismunandi svæðum bendir til þess að hærra hlutfall hrognkelsa úr Irmingerhafi og norður af Íslandi hrygni í kringum Ísland samanborið við hrognkelsi á öðrum svæðum.

Norvegshaf mikilvæg fæðuslóð hrognkelsa

Tveir fiskar sem voru merktir austur af Íslandi, voru veiddir aftur við strendur Danmerkur, og hafði annar þeirra fiskur synt 1612 km frá merkingu og fram að því að hann heimtist aftur. Endurheimtur þessara tveggja fiska í Danmörku sýnir að hluti hrognkelsastofnsins, sem hrygnir í Danmörku, nýtir Noregshafið sem fæðuslóð og að Noregshaf er sameiginlegt fæðusvæði fyrir nokkra aðgreinda stofna hrognkelsa.

Greinina í Journal of Fish Biology má sjá hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?