Um 80 manns tóku þátt í fyrsta fundi í ICEWATER verkefninu, sem haldinn var í lok mars í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdalnum í Reykjavík. Fundurinn markaði upphaf þessa metnaðarfulla verkefnis, sem miðar að því að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.
Markmið fundarins var fyrst og fremst að hrista þennan stóra hóp saman og gefa þeim sem standa að verkefninu tækifæri til að hittast og ræða verkefnið. Farið var yfir ýmis hagnýt mál sem tengjast rekstri Evrópuverkefna og línurnar lagðar fyrir þau verkefni sem fram undan eru.
ICEWATER verkefnið hlaut nýverið um 3,5 milljarð í styrk frá LIFE áætlun Evrópusambandsins og er þetta einn stærsti styrkur sem Ísland hefur fengið úr samkeppnissjóðum ESB.
Verkefnið er leitt af Umhverfis- og orkustofnun og er það unnið í nánu samstarfi við fjölbreyttan hóp íslenskra samstarfsaðila á borð við fagstofnanir ríkisins, sveitarfélög, opinber fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki.
Þátttakendur í verkefninu:
Eimur, Gefn, Grundarfjarðarbær, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hveragerðisbær, Isavia, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Matvælastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruminjasafn Íslands, Orka náttúrunnar, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfis- og orkustofnun, Umhverfis,- orku og loftslagsráðuneyti, Veðurstofa Íslands, Veitur og þrír óbeinur þátttakendur: Sveitarfélagið Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
ICEWATER verkefnið styrkt af LIFE áætlun Evrópusambandsins (styrkur nr. 101147387).