Þann 13. júní klukkan 9:00 mun Hafrannsóknastofnun kynna ráðgjöf helstu nytjastofna sjávar fyrir fiskveiðiárið 2018/2019. Kynningin mun fara fram í fyrirlestrarsal á fyrstu hæð á Skúlagötu 4.
Líkt og fyrri ár mun Hafrannsóknastofnun kynna ráðgjöf fyrir flesta botnfiskstofna á Íslandsmiðum auk ráðgjafar fyrir nokkra stofna hryggleysingja. Einnig verður ráðgjöf veitt fyrir sumargotssíld en ráðgjöf um veiðar úr öðrum uppsjávarfiskistofnum er birt á haustin. Að höfðu samráði við Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið og hagsmunaaðila mun Hafrannsóknastofnun framvegis veita ráðgjöf fyrir humar í upphafi árs en ekki í júní, líkt og verið hefur. Ástæðan er breytt aðferðafræði við stofnmat humars en nú fer stofnmæling fram í júní en úrvinnsla gagna er mun tímafrekari en áður var. Ráðgjöf humars mun þá byggjast á nýjustu gögnum og koma tímalega fyrir upphaf vertíðar sem hefst í mars.