Ljósm. Valerie Chosson
Sérfræðingur frá Hafrannsóknastofnun ásamt þremur rannsóknamönnum, fór á Strandir 5. október til að taka sýni úr grindhvaðavöðu sem gekk á land 2. október í landi Mela í Árneshreppi.
Um er að ræða rúmlega 50 hvali sem Landhelgisgæslan mun draga út á rúmsjó í næstu viku. Sýnataka gekk ágætlega en unnið var í kapp við aðfallið.
Rannsóknamenn með Valerie Chosson, sérfræðing Hafrannsóknastofnunar voru:
Anna Selbmann - doktorsnemi við HÍ, Caroline Elisabeth Haas, doktorsnemi við HÍ og University of Saint Andrews (Skotland) og Carola Chicco, nemi við HÍ og University of Torino (Ítalía).
![sýni tekin úr hvölum mynd af rannsóknamanni](/static/files/2021-frettir/4bcb558d-9632-4eef-9be3-aaa5050c68d5.jpg)
Sýni tekið úr hvölunum. Ljósm. Valerie Chosson.