Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.
Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst í dag og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Breki VE og Gullver NS ásamt rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið.
Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum, en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti.
Helsta markmið er að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengunarefnum í sjávarfangi og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.
Í marsralli 2019 hóf Hafrannsóknastofnun aftur merkingar á þorski eftir nokkurt hlé. Í ár er stefnt að merkingum á þorski á Vestfjarðamiðum og úti fyrir Norðurlandi.
Ferðir skipanna og togstöðvar í marsralli má sjá á https://skip.hafro.is/