Mynd er klippt af ráðstefnuvef
Alþjóðleg plastráðstefna "Plastics in the Arctic" hefst í dag og stendur yfir dagana 2.-4. og 8.-9. mars. Hafrannsóknastofnun er í skipulagsnefnd ráðstefnu ásamt utanríkisráðuneytinu, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Norðurskautsráðinu. Dagskráin er metnaðarfull með áhugaverðum fyrirlestrum, hringborðsumræðum og veggspjöldum.
Dagskrá á málstofum ráðstefnu:
- Uppruni plasts á norðurslóðum.
- Áskoranir á norðurslóðum í tengslum við losun úrgangs.
- Aðferðafræði við rannsóknir á stórum plastögnum sem og örplasti.
- Vöktun á plasti í Norðurhöfum, skilgreiningar á grunnviðmiðunum.
- Áhrif plastmengunar á norðurslóðum, eiturefnavistfræði og þjóðhagslegir þættir
- Kynning á NorMar rannsóknarverkefninu þar sem m.a. er fjallað um alþjóðlega staðla hvað varðar skilgreiningar, aðferðafræði og greiningar.
- Lausn plastvanda, bestu leiðir á heimsvísu til þess að draga úr plastógninni.
- Aðgerðaáætlun um hvernig unnt er að vinna á plastvandanum, samhæfðar aðgerðir í samvinnu við iðnfyrirtæki
- Lokaumræður áhrifamanna í stjórnmálum um næstu skref.
Á eftirfarandi hlekk er hægt að skrá sig á ráðstefnuna: www.arcticplastics2020.is
Almennt ráðstefnugjald er: 17500 kr. og 10000 kr. fyrir nema.