Ert þú sérfræðingur í líkanagerð?

Skjáskot: https://english.hi.is/news/
developed_a_three_dimensional_ocean_model Skjáskot: https://english.hi.is/news/
developed_a_three_dimensional_ocean_model

Hafrannsóknastofnun leitar að öflugum sérfræðingi í líkanagerð til að sinna þróun og viðhaldi á haffræðilíkönum stofnunarinnar og til þess að taka þátt í þverfaglegu starfi sem miðar að því að auka þekkingu á umhverfi og vistkerfum sjávar. Starfið felur einkum í sér þróun og viðhald haffræðilíkansins ROMS (Regional Oceanographic Modeling System) sem krefst þekkingar á forritunarmálinu Python en einnig er kostur að þekkja til Fortran. Lögð er áhersla á að hægt sé að nýta líkanið í vinnu við mat á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis við Ísland en líkanið þjónar jafnframt mikilvægu hlutverki í ýmsum rannsóknum á sviði haffræði og vistfræði.

Leitað er að lausnamiðuðum einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Þróun og viðhald haffræðilíkans fyrir íslenska hafsvæðið.

Nýting haffræðilíkans til að svara rannsóknaspurningum á sviði haffræði og vistfræði og til að meta umhverfisáhrif sjókvíaeldis og annara framkvæmda.

Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði haffræði, verkfræðilegrar haffræði, eðlisfræði, stærðfræði, eða forritunar.

Reynsla af líkanagerð.

Þekking á forritunarmálinu Python.

Þekking á forritunarmálinu Fortran er kostur.

Góðir skipulags og samskiptahæfileikar.

Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.

Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku.

Frekari upplýsingar um starfið:

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

Ítarleg ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Ennig tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

Sótt er um starfið á Starfatorgi og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2024

Hér er hægt að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir
Hrönn Egilsdóttir, hronn.egilsdottir@hafogvatn.is, sími: 6956705


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?