Reyndur vélstjóri óskast á rannsóknaskip

Reyndur vélstjóri óskast á rannsóknaskip

Vélstjóri hjá Hafrannsóknastofnun

Hafrannsóknastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf vélstjóra á rannsóknaskip stofnunarinnar til starfa sem fyrst. Um er að ræða tímabundið starf til árs með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur, viðhald og viðgerðir véla, tækja og vélbúnaðar um borð.
  • Fyrirbyggjandi viðhald með áherslu á rekstraröryggi og öryggi starfsfólks.
  • Þátttaka í þróun, uppbyggingu og innleiðingu á nýjum lausnum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
  • Hæfniskröfur
    Vélstjórnarréttindi VF.2.
  • Reynsla af því að vinna á sjó sem vélstjóri skilyrði.
  • Góð reynsla og þekking á rekstri og viðhaldi á vélum og búnaði.
  • Skipulagshæfileikar og hæfni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
  • Ríkir samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og hæfni til að vinna í teymi.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku.

Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

  • Ferilskrá
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
  • Tilnefna skal tvo umsagnaraðila
  • Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknir til greina. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
  • Hafrannsóknarstofnun áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum umsóknum.
  • Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Um stofnunina:

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 185 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Starfshlutfall er 100%.  Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2024

Nánari upplýsingar veita: 

Sigurður Karvel Sigurðsson, sigurdur.karvel.sigurdsson@hafogvatn.is. Sími: 898 8561

Berglind Björk Hreinsdóttir, berglind.bjork.hreinsdottir@hafogvatn.is. Sími: 891 6990

Nánari upplýsingar hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?