Doktorsvörn um Breytileika í fæðuvef Atlantshafslax í tíma og rúmi

Sum Yi Lai doktorsefni í líffræði Sum Yi Lai doktorsefni í líffræði

Sum Yi Lai ver doktorsverkefni sitt í líffræði 30. ágúst nk. frá kl. 13.00 til 15.00 í hátíðasal Háskóla Íslands. Heiti ritgerðar hennar er Breytileiki í fæðuvef Atlantshafslax í tíma og rúmi og hefur hún unnið að doktorsverkefni sínu í nánu samstarfi við starfsmenn Hafrannsóknastofnunar frá 2020.

Á vef Háskóla Íslands um doktorsvörnina (hér) segir m.a. að Stofnstærð Atlantshafslax hafi dregist saman á undanförnum áratugum.
„Markmiðið með þessu doktorsverkefni er að auka skilning okkar á áhrifum fæðuframboðs fyrir ungviði Atlantshafslax og hlutverk hans í fæðuvef áa, með áherslu á norðlægar, næringasnauðar ár. Samband rándýrs og fæðu hjá Atlantshafslaxi var kannað í ám á Norðausturlandi. Að auki voru fæðuvefir Atlantshafslax í ám á Norður-Atlantshafi bornir saman í tíma og rúmi. Niðurstöðurnar sýndu að lirfur og púpur rykmýs (Chironomidae) voru í mestum þéttleika meðal botnlægra hryggleysingja og var uppistaðan í fæðu ungviðis laxa á Norðausturlandi. Niðurstöðurnar sýndu einnig hvernig fæðuframboð í næringarsnauðum ám á Norðausturlandi minnkaði á 23 ára tímabili. Fæðuðvefir voru svipaðir bæði innan og á milli áa á sama svæði og tengist landfræðilegri einangrun og einsleitni í umhverfi og eiginleikum á vatnasviði ánna. Að auki sýnir samanburður á Norður-Atlantshafi hvernig fæðuvefir eru flóknari á suðlægari breiddargráðum og hvernig það tengist bæði hitastigi og gróðurfari. Ungviði Atlantshafslax á köldum, norðlægum svæðum þar sem fæðuvefir eru einfaldari, lifa við minna fæðuframboð, og þar af leiðandi eru stofnar þeirra í hættu samfara áhrifum loftlagsbreytinga. Af þeim ástæðum gæti vöktun laxastofna á norðlægum slóðum orðið vísir til að meta áhrif hnattrænna breytinga á norðlæg vistkerfi.“

 

Sum Yi Lai lauk B.Sc. gráðu í Umhverfisfræði við Háskólann í East Anglia árið 2018, og M.Sc. gráðu í Vistkerfis og Umhverfis breytingum við Imperial College London árið 2019. Áhugi hennar á að rannsaka áhrif loftslagsbreytinga á vistfræðileg samfélög leiddi hana í doktorsnám við Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnun. Sum Yi mun halda áfram að vinna að þessum rannsóknaráhuga sem nýdoktor við Háskólann í Helsinki.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?