Útbreiðsla svartserks

Útbreiðsla svartserks

Svartserkur er ný framandi tegund í fjörum hér við land. Svartserkur er sæsnigill sem ber fræðiheitið Melanochlamys diomedea. Áður hafði hann einungis fundist í Kyrrahafi og eini fundarstaðurinn utan þess er á Íslandi.

Fyrst varð vart við eggjasekkina, sem eru frekar stórir og áberandi (sjá mynd 1), árið 2020 í Sandgerði og síðar sáust þeir í Fossvogi. Í júní 2022 fundust eggjasekkir við innanverðan Breiðafjörð en það var svo í ágúst 2023 sem fyrstu dýrin fundust í Breiðafirði. Greint var frá þessum merka fundi á Líffræðiráðstefnunni síðastliðið haust og nú í júní 2024 kom út vísindagrein um þessa nýju fjörulífveru (sjá hér).

Óskað var eftir upplýsingum um frekari útbreiðslu og nú hafa bæst við all margir fundarstaðir bæði við Faxaflóa og víða í Breiðafirði, m.a. í Hvallátrum. Í byrjun ágúst voru starfsmenn Hafrannsókna- stofnunar staddir í Dýrafirði, nánar tiltekið í botni Dýrafjarðar þegar þeir rákust á eggjasekki og dýr (mynd 2). Eins fundust svartserkir og egg í Arnarfirði og á Barðaströnd. Nyrsta þekkta útbreiðsla svartserks er því Dýrafjörður en trúlega er hann að finna víðar á Vestfjörðum.

Svartserkur hefur aðallega fundist á skjólsælum leirum. Dýrin ferðast um hulin seti og því getur verið erfitt að koma auga á þau, en eggjasekkina er auðvelt að sjá. Hvaða áhrif þessi nýja tegund hefur á lífríkið í fjörum við landið er ekki vitað en fróðlegt verður að fylgjast með hvernig tegundinni reiðir af.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?