Sérfræðingur í mannauðsmálum
Hafrannsóknastofnun leitar eftir metnaðarfullum, öflugum og traustum sérfræðingi í mannauðsmálum til starfa sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ráðningar, móttaka og eftirfylgd nýrra starfsmanna.
- Greiningarvinna, samantektir og úrvinnsla á sviði kjara- og launamála.
- Kjaramál, túlkun kjara- og stofnanasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra.
- Upplýsingagjöf til starfsfólks um launa- og kjaramál.
- Vinnuréttur.
- Umsjón með tímaskráningum og undirbúningi launavinnslu.
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk í mannauðstengdum málum.
- Straumlínulaga ferla og verklag er snúa að launa- og mannauðsmálum.
- Ýmis sérverkefni og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Háskólanám sem nýtist í starfi.
- Framhaldsmenntun á sviði mannauðsstjórnunar eða skyldum greinum.
- Þekking og reynsla af túlkun kjara- og stofnanasamninga.
- Þekking og reynsla af þeim lögum og reglum sem gilda um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
- Þekking á Vinnustund eða öðru sambærilegu tímaskráningarkerfi er kostur.
- Þekking á Orra launa- og mannauðskerfi er kostur.
- Reynsla af gagnavinnslu, framsetningu og túlkun tölulegra upplýsinga.
- Reynsla af launavinnslu kostur.
- Reynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg.
- Góð færni og kunnátta í Excel.
- Hæfni til að koma auga á tækifæri fyrir stafrænni umbreytingu.
- Þekking og reynsla á að vinna með Power BI eða önnur sambærileg greiningartól.
- Góð íslensku og enskukunnátta í rituðu og mæltu máli.
- Nákvæmni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
- Ítarleg starfsferilskrá.
- Sérstakt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjandi sem nýtist starfi.
- Afrit af prófskírteinum.
- Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Um stofnunina:
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 185 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2024
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Björk Hreinsdóttir, berglind.bjork.hreinsdottir@hafogvatn.is
Sími: 891 6990
Nánari upplýsingar hér.