Djúpkanni keyptur til rannsókna á leyndardómum hafsbotnins

Hér eru sjávarlíffræðingarnir Julian Burgos, Bylgja Sif Jónsdóttir og Steinunn Hilma Ólafsdóttir kam… Hér eru sjávarlíffræðingarnir Julian Burgos, Bylgja Sif Jónsdóttir og Steinunn Hilma Ólafsdóttir kampakát aftan við nýja djúpkannann sem á eftir að bæta mikilli þekkingu við djúpsjávarrannsóknir hérlendis. Lengst til hægri er Valdimar Karl Kristinsson frá Slippnum á Akureyri sem er umboðsaðili Deep Trekker á Íslandi.

Hafrannsóknastofnun fékk í dag afhendan nýjan fjarstýrðan kafbát í þeim tilgangi að auka möguleika til rannsókna í fjörðum og flóum umhverfis landið og gera þeim betri skil en tæki af þessu tagi hafa verið nefnd djúpkannar til að forðast samanburð við stærri og mannaða kafbáta.

Um er að ræða fjarstýrðan djúpkanna af gerðinni Revolution framleiddan af kanadíska fyrirtækinu Deep Trekker. Djúpkanninn er einn sá tæknilegasti sinnar tegundar hér á landi en hann er sérlega vel útbúin búnaði sem hentar verkefnum stofnunarinnar. Hann er búinn 4K upptökuvél, tveimur laserum og fjórum led ljósum og mun safna myndefni af hafsbotni. Myndefnið verður notað við ýmsar rannsóknir, til dæmis kortlagningu búsvæða, skráningar á lífríki og botngerð, mat á áhrifum og margt fleira. Griparmur fylgir með sem veitir möguleika á söfnun sýna. Með þessu tæki opnast margir nýir möguleikar sem leiða til aukinnar þekkingar á grunnsævi í kringum landið.

Notkunartíminn tengdur aðstæðum ytri aflgjafa

Djúpkanninn er einungis 26 kg á þyngd, kemst á 300 metra dýpi og er knúinn af sex seguldrifnum skrúfum sem ráða við allt að 4 hnúta straum. Hann gengur fyrir tveimur batteríum og duga í allt að 6 klst en auk þeirra var keyptur búnaður sem beintengir bátinn við aflgjafa á yfirborðinu svo notkunartími takmarkast aðeins af aðstæðum tengdum ytri aflgjafa.

Valdemar Karl Kristinsson, verkefnastjóri hjá Slippnum Akureyri, sem er umboðsaðili Deep Trekker á Íslandi, staðfestir að þessi kafbátur sé í fremstu röð þegar kemur að gæðum og tæknilegum eiginleikum. Sambærilegir kafbátar hafa þegar sannað gildi sitt hjá hafnaryfirvöldum, strandgæslum og björgunarsveitum vestanhafs.

Þá fylgdi með honum USBL staðsetningartæki svo hægt sé að forrita fyrir framákveðnar siglingarleiðir í eftirlitsferðum þegar skanna á sjávarbotna en sónar af gerðinni Oculus MT1200d frá Bluprint Subsea er á bátnum. 


Á þessari mynd af botni Lake Ontario má sjá ferskvatnsskeljar (Zebra mussels) en myndin var klippt úr myndbandi
sem tekið var upp með sambærilegum djúpkanna og keyptur var til Hafrannsókna- stofnunar.  Sjá myndbandið hér. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?