Mynd sem fylgir útgefinni grein.
Nýlega birtist greinin „Shifting fish distributions in warming sub-Arctic oceans“ í vísindaritinu Scientific Reports.
https://www.nature.com/articles/s41598-020-73444-y
Höfundar eru Steven E. Campana og Ragnhildur B. Stefánsdóttir frá Háskóla Íslands, Klara Jakobsdóttir og Jón Sólmundsson frá Hafrannsóknastofnun. Greinin byggir á gögnum úr 5390 togstöðvum í stofnmælingum Hafrannsóknastofnunar árin 1996-2018 (haustrall). Á þessu tímabili hefur ástand sjávar á Íslandsmiðum breyst mikið og markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif þeirra umhverfisbreytinga á útbreiðslu mismunandi fisktegunda. Alls voru 82 tegundir skoðaðar.
Hitastig sjávar við botn hefur farið hækkandi undanfarna tvo áratugi, en breytingarnar eru mismunandi eftir svæðum og dýpi. Áhrif þessara hitabreytinga voru skoðuð fyrir fisktegundir sem lifa við mismunandi hitastig á Íslandsmiðum. Alls reyndist útbreiðsla helmings tegundanna hafa breyst og langflestar sýndu tilfærslu til vesturs, norðvesturs eða norðurs. Þessar breytingar á útbreiðslu voru mest áberandi hjá tegundum grunnslóðarinnar og þá sérstaklega hlýsjávartegundum og þeim sem lifa við þröngt hitastigsbil á Íslandsmiðum (stenothermal). Tilfærsla tegundanna samfara 1°C hækkun sjávarhita var metin vera á bilinu 1-326 km, að meðaltali 38 km.
Líklegt er að hitastig sjávar muni halda áfram að hækka á næstu árum og áratugum, en vegna landfræðilegrar legu Íslands og síbreytilegra haffræðilegra skilyrða gætu áhrifin á Íslandsmiðum orðið hægari, breytilegri og minna fyrirsjáanlegri en á öðrum svæðum. Þessi rannsókn sýndi að heimasvæði 7% tegunda geti færst til um meira en 100 km við einungis 1°C hækkun hitastigs. Hækkun um 2-3°C væri því líkleg til að valda stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum við Ísland.