Warsha Singh er með doktorsgráðu í vistfræðilegri líkanagerð og hefur hún mikinn áhuga á rannsóknum og vísindalegri fræðslu. Hún ólst upp á Fiji eyjum og býr nú og starfar á Íslandi; tveimur gjörólíkum eyjum sem hafa fengið að kenna á loftslagsbreytingum með ólíkum hætti. Bakgrunnur hennar felst m.a. í líkanagerð sem byggir á fiskveiðigögnum og mati á stofnstærðum.
Warsha Singh á Alþjóðlegum degi kvenna í marghliða samvinnu UNESCO
Warsha Singh, vistfræðingur á uppsjávarsviði Hafrannsóknastofnunar, var valin til að taka þátt í Alþjóðlegum degi kvenna í marghliða samvinnu 2024 en viðburðurinn var á vegum menningar- og menntamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) þann 25. janúar.
Þema fundarins var Jafnrétti kynjanna í þágu lausna gegn loftslagsvánni. Dagurinn beinir sjónum að kvenleiðtogum í marghliða samtarfi og hvetur til hnattræns samtals um marghliða lausnir á kynjamisrétti, sem aftrar viðbrögðum gegn loftlagsvánni.
Sjá nánar frétt á vef Hafrannsóknastofnunar frá 20. janúar.
![](/static/files/_blob/v7rn7zlmkdixdk43j9ona.jpg)
![](/static/files/_blob/wj9thtn8tkuy29ukcrvoj.jpg)
![](/static/files/_blob/fv4qeysqn258vfrgwyfd85.jpg)
![](/static/files/_blob/clfc5wily8fahr51gfuiil.jpg)
![](/static/files/_blob/b015kvs7ws6h1f2vq0knf6.jpg)
![](/static/files/_blob/r1aixo5ga730lzcj4tsxv.jpg)