Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.
Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst mánudaginn 27. febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Breki VE og Gullver NS, og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson.
Togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Ferðir skipanna og togstöðvar má sjá á https://skip.hafro.is/
Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985 og er þetta því í 39. skipti sem mælingin fer fram. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti.
Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengunarefnum í sjávarfangi og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.
Í handbók verkefnisins er fyrirhugaðri framkvæmd verkefnisins lýst nákvæmlega.