Hafrannsóknastofnun leitar eftir efnafræðingi í sjórannsóknateymi stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Úrvinnsla haffræðigagna, kvarðanir og gæðaeftirlit.
- Söfnun sjósýna og efnagreiningar á rannsóknastofu.
- Kvörðun nema og uppsetning mælitækja.
- Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum um borð í rannsóknaskipum.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf í efnafræði eða skyldum greinum er skilyrði.
- Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt) er kostur.
- Reynsla af störfum á rannsóknastofu og notkun rannsóknatækja er kostur.
- Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er ákjósanleg.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
- Ítarleg ferilskrá.
- Afrit af prófskírteinum.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.
Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Hafrannsóknastofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri Umhverfissviðs- hronn.egilsdottir@hafogvatn.is - 695 6705
Sólveig Lilja Einarsdóttir, Mannauðssvið - solveig.lilja.einarsdottir@hafogvatn.is
Smelltu hér til að sækja um starfið