Stofnmat á útsel við Ísland

Stofnmat á útsel við Ísland

Niðurstöður talninga á útsel við Ísland haustið 2022 liggja nú fyrir, sjá hér. Stærð íslenska útselsstofnsins hefur verið metin reglulega frá 1982 með talningum á kópum að hausti. Í talningunni árið 2022 var heildarkópaframleiðslan metin vera 1551 kópar (95% öryggismörk = 1486-1613). Mikilvægasta kæpingarsvæðið var líkt og áður Breiðafjörður með um 62% af kópunum.

Út frá þessari kópatalningu er stofnstærð útsels árið 2022 metin 6697 dýr (95% öryggismörk = 5576-7841). Það þýðir um 27% fækkun í stofninum frá fyrstu talningu sem fór fram árið 1982, en jafnframt um 6,8% fjölgun frá árinu 2017 þegar talning fór síðast fram. Breytingin á stofnstærð milli áranna 2005 og 2022 var þó ekki tölfræðilega marktæk sem þýðir að stærð stofnsins stendur í stað.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?