Skipað hefur verið í ráðgjafarnefnd sem hefur það hlutverk með höndum að vera forstjóra Hafrannsóknastofnunar til ráðuneytis.
4. gr. Ráðgjafarnefnd. Forstjóri hefur sér til ráðuneytis níu manna ráðgjafarnefnd sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og er hann formaður, einn samkvæmt tilnefningu ráðherra sem fer með umhverfismál, einn samkvæmt tilnefningu ráðherra menntamála, og skal sá valinn úr hópi háskólakennara eða annarra fræðimanna við háskólastofnun, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldisstöðva, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands smábátaeigenda, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands stangaveiðifélaga, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands veiðifélaga, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og einn samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Forstjóri situr fundi með ráðgjafarnefnd.
Ráðgjafarnefndin skal funda einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir. Formaður ráðgjafarnefndar kveður hana saman til fundar.
Verkefni nefndarinnar er að vera forstjóra til ráðuneytis um langtímastefnumótun starfseminnar og vera tengiliður við hagsmunaaðila um fagleg málefni.
Formaður nefndarinnar, skipaður án tilnefningar af ráðherra, er Ágúst Einarsson. Aðrir í nefndarmeðlimir eru:
- frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti: Sesselja Bjarnadóttir og til vara Hugi Ólafsson
- frá mennta- og menningarmálaráðuneyti: Erla Björk Örnólfsdóttir og til vara Sigurjón Arason
- frá Landssambandi fiskeldisstöðva: Heiðdís Smáradóttir og til vara Jónas Jónasson
- frá Landssambandi smábátaeigenda: Örn Pálsson og til vara Ólafur Hallgrímsson
- frá Landssambandi stangaveiðifélaga: Ragnheiður Thorsteinsson og til vara Viktor Guðmundsson
- frá Landssambandi veiðifélaga: Sveinbjörn Eyjólfsson og til vara Drífa Hjartardóttir
- frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi: Kristján Þórarinsson og til vara Anna Guðmundsdóttir
- frá Sjómannasambandi Íslands og Farmanna og fiskimannasambandi Íslands sameininlega: Árni Bjarnason og til vara Valmundur Valmundsson