Á þessum námsvetri komu 23 nemendur frá 14 löndum; 12 konur og 11 karlar
Öflugur liðsauki víðsvegar að úr heiminum hefur borist höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar. Nemendur Sjávarútvegsskóla GRÓ komu nýlega til landsins til að sinna hálfs árs námi í sjávarútvegs- og ferskvatnsfræðum af ýmsu tagi.
Þróunarsamvinnumiðstöðin, sem skólinn er hluti af, heitir fullu nafni GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu og er sjálfstæð miðstöð um uppbyggingu færni og þekkingar í þróunarlöndum. Námið er styrkt af ríkisstjórn Íslands og hýst hjá Hafrannsóknastofnun.
Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu og er sjálfstæð miðstöð um uppbyggingu færni og þekkingar í þróunarlöndum. Námið er styrkt af ríkisstjórn Íslands og hýst hjá Hafrannsóknastofnun.
Umfangsmesti þátturinn í starfsemi Sjávarútvegsskólans er sex mánaða nám sem haldið er á hverjum vetri fyrir sérfræðinga á sviði sjávarútvegs og fiskeldis í þróunarlöndum. Í náminu eru nemendurnir, sem allir eru sérfræðingar á sínu sviði, efldir faglega og búnir undir að beita áhrifum sínum á sínu fagsviði í sínu heimlandi þegar náminu er lokið.
Á þessum námsvetri komu 23 nemendur frá 14 löndum frá Karíbahafi, Afríku, Asíu og Kyrrahafi; 12 konur og 11 karlar. Eftir inngangshluta námsskeiðsins, sem lýkur um áramótin, mun hver og einn nemandi velja sér eitt af eftirfarandi sviðum til að sérhæfa sig í en þau eru: stofnstærðarsvið, fiskeldissvið, gæðastjórnunarsvið eða fiskveiðistjórnunarsvið.