Ný bók um Atlantshafsþorskinn

Ný bók um Atlantshafsþorskinn

Út er komin bókin Líffræði og vistfræði Atlantshafsþorsks (e. Biology and Ecology of Atlantic Cod) á vegum vísindaútgáfunnar CRC Press. Dr. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur á Hafrannsóknastofnun er meðal ritstjóra og höfunda bókarinnar en einnig koma fjórir aðrir sérfræðingar stofnunarinnar að skrifum tveggja kafla. Annars vegar að fimmta kafla bókarinnar sem ber heitið Íslenski þorskstofninn (e. Icelandic cod stock) og hins vegar tíunda kafla bókarinnar um samanburð mismunandi þorskstofna (e. Comparisons of the Atlantic cod stocks: Biology, fisheries, and management). Auk Ingibjargar koma Christophe Pampoulie, Einar Hjörleifsson, Jacob Kasper og Jón Sólmundsson, sem öll eru starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, að skrifunum. Alls leggja 27 vísindamenn hönd á plóg við ritun bókarinnar.

Í inngangi bókarinnar kemur fram að þorskur er ein mikilvægasta fisktegundin í Norður Evrópu og við austurströnd Bandaríkjanna og Kanada. Þorskur hefur haft mikil áhrif á þróun byggða á mörgum svæðum og sér í lagi hefur hrun þorskstofna haft neikvæðar afleiðingar fyrir minni sjávarbyggðir.

Bókin veitir greinargott yfirlit um líffræði og vistfræði þorsks. Í sjö köflum er farið ítarlega yfir stöðu mismunandi þorskstofna í N-Atlantshafi þar sem einblínt er á grunnþekkingu viðkomandi stofns. Í hinum þremur köflum bókarinnar er farið ítarlegar yfir áhrif loftslagsbreytinga á þorskstofna, fæðuvistfræði þorsks og samanburð mismunandi þorskstofna.

Fimmti kafli bókarinnar fjallar um stöðu þekkingar á íslenska þorskstofninum. Kaflanum er skipt upp í þrjá undirkafla. Fyrst er farið yfir líf- og vistfræði íslenska þorsksins, þætti líkt og göngur, fæðuval, stofngerð og atferli. Síðan er farið yfir helstu áskoranir stofnsins þar sem m.a. er fjallað um áhrif breytinga í hitastigi sjávar á stofninn, áhrif mannsins á uppeldissvæði og samspil þorsks, rækju og loðnu en tvær síðustu tegundirnar eru mikilvæg fæða þorsks. Síðasti hluti kaflans snýr að veiðum og þróun stofnsins frá því fyrir seinni heimsstyrjöld.

Í tíunda kafla bókarinnar eru mismunandi þorskstofnar bornir saman. Þar sem útbreiðslusvæði þorsks er stórt þá er umhverfið sem stofnarnir lifa í mjög mismunandi. Þegar stofnarnir eru bornir saman sést vel hve mikil áhrif hitastig hefur á líffræði þorsks, svo sem vöxt og kynþroskaaldur hans. Íslenski þorskurinn vex töluvert hægar og verður kynþroska seinna en þorskar á suðlægari svæðum. Nýting stofnanna hefur verið mismunandi og af þeim 15 stofnum sem fjallað er um í kafla 10 má sjá að íslenski þorskstofninn er einn af fjórum sem metinn er í góðu ástandi.

Efni bókarinnar er almennt og höfðar til fjölbreytts lesendahóps; almennings, vísindamanna og þeirra sem sinna stjórnun fiskveiða.

Hægt að kaupa bókina á netinu, t.d. á Amazon, en einnig hér (Routledge) og hér (Taylor and Francis)


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?