Eins og kunnugt er bentu mælingar á loðnustofninum í september/október 2016 til þess að veiðistofninn á vertíðinni 2016-2017 væri lítill og í samræmi við samþykkta aflareglu var ákveðið að engar veiðar yrðu stundaðar nema mælingar í janúar/febrúar 2017 gæfu tilefni til endurskoðunar.
Vetrarmæling á loðnustofninum fór fram á rannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni ásamt uppsjávarskipinu Polar Amaroq dagana 11. – 20. janúar 2017 með það að markmiði að meta stærð veiðistofnsins.
Rannsóknasvæðið var landgrunnið og landgrunnsbrúnin frá Grænlandssundi, austur með Norðurlandi og allt að norðanverðum Austfjörðum. Gerðar voru 2 mælingar á veiðistofninum. Sú fyrri fór fram dagana 12. – 15. janúar og fannst loðna frá sunnanverðum Vestfjörðum norður um og austur að Kolbeinseyjarhrygg (mynd 1). Þar fyrir austan varð ekki vart við fullorðna loðnu. Þar sem veður var slæmt þegar mælingunni lauk biðu skipin á Siglufirði þar til veður batnaði. Síðari yfirferðin fór fram dagana 17. – 20. janúar á svæðinu frá Kolbeinseyjarhrygg og vestur um (mynd 2). Veður var viðunandi en ís hafði færst yfir hluta mælingasvæðisins í seinni yfirferðinni.
Um 398 þúsund tonn af kynþroska loðnu mældust í fyrri yfirferðinni og mæliskekkja (CV) var metin 0.2. Í síðari yfirferðinni mældust um 493 þúsund tonn og mæliskekkjan metin 0.23. Meðaltal þessara mælinga, 446 þúsund tonn, er mat á stærð veiðistofns.
Gildandi aflaregla, sem stjórnvöld ákváðu að taka upp vorið 2015, byggir á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats í mælingunum, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk þess sem afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu er metið. Í samræmi við ofangreinda aflareglu verður heildaraflamark á vertíðinni 2016-2017 57 þúsund tonn.