Leiðangur í kortlagningu búsvæða nýlokið

Leiðangur í kortlagningu búsvæða nýlokið

Vísindafólk á vegum Hafrannsóknastofnunar hefur nýlokið leiðangri í kortlagningu búsvæða. Markmiðið var að kortleggja samfélög og búsvæði botndýra á landgrunnsbrúninni suður og austur af Íslandi.

Alls voru tekin 75 snið með neðansjávarmyndavél á 60 til 285 m dýpi. Svæðið sem farið var yfir var 22.000 ferkílómetrar. Ólík búsvæði og samfélög sáust á mismunandi botngerðum. Fjölmargar tegundir hryggleysingja sáust auk sæfjarðragarðar og möttuldýrabreiður. Upplýsinar sem safnast í leiðangrinum munu auka þekkingu á vistkerfum hafsbotnsins við Ísland.

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?