Hvalatalningar sumarsins hafnar

Hér má sjá talningarsvæðin. Fyrsti leggurinn á Árna Friðrikssyni er á svæði IR en þessi leggur er sa… Hér má sjá talningarsvæðin. Fyrsti leggurinn á Árna Friðrikssyni er á svæði IR en þessi leggur er samnýttur með rannsóknum á karfa, áður en hann heldur áfram á svæðum IMN, IMW, IMS og IME, en þau svæði eru samnýting með rannsóknum á útbreiðslu makríls. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana í stærri útgáfu.

Nú í byrjun sumars hófust viðfangsmiklar hvalatalningar við landið, þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson lagði í hann frá Hafnarfirði.
Þessar talningar eru hluti af svokölluðum NASS talningum (North Atlantic Sighting Survey), en þær hafa verið framkvæmdar reglulega síðan 1987, og eru talningar sumarsins þær sjöundu í seríunni. Auk Íslands taka Noregur, Færeyjar, og Grænland þátt í talningunni, en auk þess eru Kanada og Skotland með álíka talningar á sama tíma.

Svipast um eftir hvölum, Sverrir Daníel Halldórsson og Davíð Tómas Davíðsson, starfsmenn Hafrannsóknastofnunar
Í upphafi þessa talninga var markmiðið að meta stofnstærðir nytjategunda, langreyða og hrefnu við Ísland, grindhvala við Færeyjar, hrefnu við Noreg, og hnúfubak, langreyða og hrefnu við Grænland. Í seinni tíð hefur fókusinn víkkað, og hafa þessar talningar veitt okkur grunnupplýsingar um samfélög hvala við landið, og verið grunnur fjölda vísindagreina um ýmis efni, eins og breytingar í útbreiðslu og stofnstærð o.fl.

Talningarnar eru skipulagðar af Norður Atlantshafs spendýraráðinu (NAMMCO), með þátttöku allra þjóða, auk þess sem aðferðafræðin er rýnd af utanaðkomandi sérfræðingum. Skemmtilegt er að segja frá því að talningarnar eru ein af umfangsmestu dýratalningum í heimi, enda talningarsvæðið mjög víðfemt (sjá kort).

Á meðfylgjandi mynd má sjá talningarsvæðin. Fyrsti leggurinn á Árna Friðrikssyni er á svæði IR en þessi leggur er samnýttur með rannsóknum á karfa, áður en hann heldur áfram á svæðum IMN, IMW, IMS og IME, en þau svæði eru samnýting með rannsóknum á útbreiðslu makríls.

Bjarni Sæmundsson dekkar síðan svæðin IDS, og IDW1-4 þegar hann leggur af stað í júlí. Færeyjar dekka FM, FDE, og FDW, en Noregur NME og NMN auk þess sem þeir verða með sérstaka hrefnutalningu í Barentshafi. Grænlendingar verða með flugtalningu meðfram ströndum Grænlands. Skotar dekka síðan svæðið merkt SCANS24.

Á hverju skipi eru 8 hvalatalningarmenn um borð, og unnið er á 2 tíma róterandi vöktum en talið er á tveimur pöllum á hverju skipi. Samkvæmt Sverri Daníel Halldórssyni leiðangursstjóra hvalatalninga um borð í Árna Friðrikssyni fóru talningar vel af stað í gær, þegar þau sigldu út úr vetrarveðrinu sem hefur herjað á landsmenn þessa vikuna. Gott veður var á svæðinu, og sáust langreyðar, hnúfubakar, hrefnur og hnýðingar.


 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?