Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir samstarfi við togara vegna stofnmælinga

Mynd: Svanhildur Egilsdóttir Mynd: Svanhildur Egilsdóttir

Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á togurum til stofnmælinga að hausti og vori. Um er að ræða útboð vegna djúpslóðar í haustralli ásamt NA og S svæða í marsralli til eins árs (haustrall 2024, marsrall 2025) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert er ráð fyrir fjórum vikum í október (haustrall) og þrem vikum frá lokum febrúar fram í mars (marsrall).

Niðurstöður úr verkefnunum eru mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Haustrall hefur farið fram frá árinu 1996 og teknar eru tæplega 400 stöðvar umhverfis landið. Þar af eru 179 stöðvar teknar á djúpslóð. Marsrall hefur farið fram ár hvert frá 1985 og eru teknar hátt í 600 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af eru tæplega 155 stöðvar teknar á hvoru þeirra svæða sem nú eru boðin út.

Leiga er greidd með aflamarki. Útboðsgögn má sækja á útboðsvefnum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?