Breytt atferli loðnu vegna loftslagsbreytinga

Loðnuskip á veiðum. Loðnuskip á veiðum.

Vísindamenn frá Hafrannsóknastofnun, í samstarfi við Tækniháskólann í Danmörku (DTU Aqua), birtu nýlega grein í vísindaritinu Fisheries Oceanography þar sem breytingar á útbreiðslu loðnu í kjölfar loftlagsbreytinga á Íslandi-Austur-Grænlandi-Jan Mayen svæðinu var rannsökuð.

Í greininni kemur fram að miklar breytingar hafi orðið á dreifingu og farleiðum loðnu. Þannig færðust meginfæðusvæði hennar frá Íslandshafi norður af landinu til austurstrandar Grænlands í byrjun aldarinnar. Því til viðbótar hefur komu hrygningarloðnu inn á svæðin norður af Íslandi að vetri átt sér stað seinna frá og með árinu 2003. Mismunandi tölfræðilíkönum var beitt í þessari rannsókn sem gáfu til kynna að þessar breytingar á dreifingu loðnunnar tengdust umhverfisbreytingum í hafinu.

Verkefnið var hluti af Horizon 2020 verkefni Evrópusambandsins, ECOTIP, þar sem áhersla var á að greina vistfræðilega vendipunkta í norðurhöfum, það er að segja að ákvarða hvenær breytingar á vistkerfisþáttum ná mörkum sem munu hafa víðtækari áhrif.

Greinina má finna hér.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?