30% aukning á fjölda stangveiddra laxa milli ára

30% aukning á fjölda stangveiddra laxa milli ára

Bráðabirgðasamantekt Hafrannsóknastofnunar sýnir að heildarfjöldi stangveiddra laxa árið 2024 var um 42.400 fiskar, sem er um 30 % aukning frá árinu 2023 og um 2% undir meðalveiði áranna 1974 - 2023.

Heildarfjöldi stangveiddra laxa sumarið 2024 var um 42.400 fiskar (mynd 1), sem var um 30% aukning frá árinu 2023 og 2% undir meðalveiði áranna 1974 - 2023. Veiðin 2024 var um 9.700 löxum meiri en hún var 2023. Aukning var í veiði í ám í öllum landshlutum (mynd 2, sjá neðar).

Mynd 1. Stangveiði í íslenskum ám frá 1974 - 2024. Veiðinni er skipt í landaðan afla (blátt), veitt og sleppt (grænt) og veiði úr sleppingum gönguseiða (rautt). Tölur frá 2024 eru bráðabirgðatölur.

Í tölum um heildarlaxveiði eru taldir villtir laxar, laxar sem upprunnir eru úr sleppingum gönguseiða og einnig þeir laxar sem er sleppt aftur í stangveiði (veitt og sleppt). Laxveiði í ám sem byggja veiði á sleppingum gönguseiða var alls um 7.300 laxar sem er um 300 löxum minna en veiddist 2023 þegar 7.061 lax veiddist.

36% aukning á heildarstangvveiði villtra laxa

Við samanburð á langtíma þróun á stangveiði þarf að taka tillit til þess að laxar úr gönguseiðasleppingum eru viðbót við náttúrulega framleiðslu ánna og einnig þegar veitt er og sleppt í stangveiði veiðast sumir fiskar oftar en einu sinni. Þegar litið er til veiða á villtum laxi í stangveiði eingöngu (ekki úr seiðasleppingum til hafbeitar), og áætlaður fjöldi endurveiddra laxa (veitt og sleppt) dregin frá, er heildarstangveiði villtra laxa árið 2024 um 35.000 laxar, sem er um 36% aukning frá 2023 (3. mynd). Þrátt fyrir aukningu á milli ára þá er veiðin á árinu 2024 undir meðalveiði og hefur verið það síðustu 9 árin.

Fjöldi þeirra laxa sem ganga í ár er annarsvegar háður fjölda seiða sem ganga úr ánum til sjávar og hinsvegar hversu margir lifa sjávardvölina af og skila sér til baka í árnar. Almennt hefur dánartala laxa í sjó í Norður Atlantshafi farið vaxandi en ástæður þess eru ekki þekktar en bent hefur verið á þætti eins og loftslagsbreytingar, meðaflaveiði, áhrif fiskeldis og breytingar á búsvæðum í fersku vatni.

Sumarið 2024 einkenndist af miklu vatnsrennsli í flestum ám og því mikil breyting frá árinu 2023 þegar lágrennsli var einkennandi.

Verið er að vinna að samantekt veiði og eru veiðiréttarhafar hvattir til að skila veiðitölum til Hafrannsóknastofnunar sem fyrst en lokatölur um veiði verða gefnar út að samantekt lokinni.

 

2. mynd. Stangveiði á laxi sumarið 2024 skipt eftir landshlutum. Á Suðurlandi er gerður greinarmunur á veiði á villtum laxi (blátt) og laxi úr hafbeitarám (rautt). Tölur frá 2024 eru bráðabirgðatölur.

3. mynd. Stangveiði í íslenskum laxveiðiám þegar laxveiði í hafbeitarám er undanskilin og leiðrétt hefur verið fyrir áhrifum veiða og sleppa. Tölur frá 2024 eru bráðabirgðatölur.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?