Áhrif loftslagsbreytinga á sjávarvistkerfum norðurskautsins

Hið þýska rannsóknaskip og ísbrjótur RV Polarstern sem er í eigu Alfred Wegener stofnunarinnar. Þett… Hið þýska rannsóknaskip og ísbrjótur RV Polarstern sem er í eigu Alfred Wegener stofnunarinnar. Þetta sögufræga skip,sem var smíðað árið 1982, getur brotist í gegnum 1,5m þykkan ís á 10 km/klst.

Næstu mánuði mun Alfred Wegener stofnuninn standa fyrir leiðangri til norðurskautsins, upp að 80. breiddargráðu, á hinu sögufræga skipi og ísbrjóti og ísbrjóti RV Polarstern.

Starfsmaður Hafrannsóknastofnunar, Áki Jarl Láruson stofnerfðafræðingur, verður um borð til að vinna að verkefninu "Áhrif loftslagsbreytinga á sjávarvistkerfum norðurskautsins" (e. Impact of climate change on Arctic marine ecosystems).

Sýni verða tekin á langtíma vöktunarstöðum, en í þetta skipti munu leiðangursfólk freista þess að einangra DNA úr sjávarhryggleysingjum til að skoða tengingar breytilegs umhverfis við arfgengni mismunandi erfðavísa. Með þessu er vonast til að einkenna mögulega lífvísategundir (e.bioindicator species) á norðurslóðum.

Það má fylgjast með leiðöngrum Polarstern hérna. 

Hér má lesa þau verkefni sem verða unnin í leiðangrinum. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?