Við leitum að starfsmanni til að rannsaka sýni og gögn

Mynd: Svanhildur Egilsdóttr Mynd: Svanhildur Egilsdóttr

Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða aðila við rannsóknir sýna og gagnavinnslu í starfsstöð stofnunarinnar í Hafnarfirði. Starfið felst í fjölbreyttri vinnu við öflun og úrvinnslu gagna í landi og í rannsóknaleiðöngrum á sjó.

Um stofnunina:

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.

Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Helstu verkefni og ábyrgð: 

Aldursgreiningar nytjastofna, þátttaka í sýnatöku úr lönduðum afla nytjastofna, þátttaka í rannsóknaleiðöngrum á sjó, úrvinnsla sýna, ­­­

önnur tilfallandi verkefni:

Hæfniskröfur:

Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi, almenn góð tölvukunnátta, nákvæmni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Rík þjónustulund, jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Góð íslensku kunnátta í rituðu og mæltu máli.

Enskukunnátta æskileg

Frekari upplýsingar um starfið


Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur er til 29. janúar 2025.

Umsókn skal fylgja:

Ítarleg náms- og ferilskrá, afrit af prófskírteinum. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Tilnefna skal tvo meðmælendur

Sótt er um starfið á Starfatorgi. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknir til greina. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.01.2025

Nánari upplýsingar veita: Jónas Páll Jónasson, jonas.jonasson@hafogvatn.is í síma 696-1750 og Aðalbjörg Jónsdóttir, adalbjorg.jonsdottir@hafogvatn.is í síma: 695-6804

Sækja um starf


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?