Humarholur á hafsbotni
Árlegur humarleiðangur Hafrannsóknastofnunar fór fram dagana 10. til 19. júní síðastliðinn. Þetta var í fimmtugasta og annað sinn sem haldið var til rannsókna á humri að vorlagi og í fimmta skiptið þar sem humarholur voru taldar með neðansjávarmyndavélum. Hér má sjá myndband þar sem verið er að telja humarholur. Alls var myndað á 85 stöðvum á humarbleiðum allt frá Jökuldýpi í vestri til Lónsdýpis í austri. Árið 2019 var fjöldi humarholna metin vera tæpar 500 milljónir. Þá var mesti þéttleiki þeirra í Breiðamerkur- og Hornafjarðardjúpum um 0,13 humarholur á hvern fermeter en talningar á holum hófust þegar stofninn hafði náð mikilli lægð sökum nýliðunarbrests sem enn sér ekki fyrir endann á. Niðurstöður þessa leiðangurs verða kynntar í haust þegar búið verður að fara yfir allt myndefnið. Í leiðangrinum voru einnig tekin háfsýni til að fá upplýsingar um magn humarlirfa og samsetningu dýrasvifs á svæðinu. Sem stakir standa eru humarveiðar bannaðar í Jökul- og Lónsdjúpi og voru tekin þar tog með humavörpu til að kanna stærðarsamsetningu humars.
![humar humar á hafsbotni](/static/files/2020-sidur/img_4990.jpg)
Leiðangurinn gekk heilt yfir vel, en gæta þurfti veðurs við myndatökur en vindhraði og tilsvarandi sjólag mega helst ekki fara yfir 10 metra á sekúndu. Vorblóminn var enn til staðar á vesturhluta veiðislóðarinnar og voru nokkur humarskip að veiðum þar. Sjór var tærari á austurhluta rannsóknasvæðisins en þar mátti greina leifar vorblómans sem sokkins grot rétt ofan við hafsbotninn. Af þess sökum var skyggni við botninn nokkuð víða mjög lítið.
![kvöldsól á sjónum um borð í rannsóknaskipinu](/static/files/2020-sidur/thumbnail_img_3579.jpg)
Humarleiðangurinn fór fram um borð í rannsóknaskipi Hafrannasóknastofnunar Bjarna Sæmundssyni HF 30. Leiðangursstjóri var Jónas Páll Jónasson og skipstjóri Ásmundur Sveinsson.
![humarrannsóknir humarrannsóknir](/static/files/2020-sidur/thumbnail_img_3615.jpg)