Togararall 2020 – auglýst eftir tveimur togurum

Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir

Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á tveimur togurum til stofnmælinga.

Um er að ræða útboð vegna NA svæðis og S svæðis til eins árs (2020) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert ráð fyrir að verkefnið taki um þrjár vikur frá lokum febrúar fram í mars.

Niðurstöður úr verkefninu eru mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1985 og eru teknar hátt í 600 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af eru um 155 stöðvar teknar á hvoru þeirra svæða sem nú er boðin út.

Leiga er greidd með aflamarki.

Útboðsgögn má sækja á: 

http://utbodsvefur.is/stofnmaeling-botnfiska/


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?