Stofnmat og ráðgjöf vegna rækju við Snæfellsnes

Stofnmat og ráðgjöf vegna rækju við Snæfellsnes

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðleggingar um að leyfðar verði veiðar á 698 tonnum af rækju við Snæfellsnes á tímabilinu frá 1. maí 2017 til 15. mars 2018. Forsendur ráðgjafar má nálgast í meðfylgjandi skjali: Rækja_Snæfellsnes (.pdf).
 
Stofnvísitala rækju við Snæfellsnes var undir meðallagi og mældist minna af rækju í Breiðafirði en undanfarin þrjú ár. Lítið var af fiski á slóðinni. Nánari upplýsingar um niðurstöður stofnmælingarinnar, veiðar og ráðgjöf má nálgast í meðfylgjandi skjali: Stofnmat Snæfellsnesrækju 2017 (.pdf).

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?