Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem birt var á vef stofnunarinnar þann 13. júní síðastliðinn fyrir ígulker segir meðal annars: „Jafnframt er lagt til að innan þessa svæðis verði dregin lína (65°13´00“N) til skiptingar svæðinu og aflamark norðan hennar verði 69 tonn og sunnan 206 tonn“.
Mistök urðu í framsetningu ráðgjafarinnar og hefur stofnunin nú uppfært ráðgjöfina þannig að áðurnefnd setning verður svohljóðandi: „Jafnframt er lagt til að innan þessa svæðis verði dregnar línur suður og austur úr punktinum 65°13´00N og 22°40‘00V til skiptingar svæðinu og aflamark norðan og vestan við línurnar verði 69 tonn og sunnan og austan verði 206 tonn“.
Hafrannsóknastofnun harmar þessi mistök.
Hér má finna hlekk á ráðgjöfina uppfærða