Makríll
Í dag 30. september veitti Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráð um veiðar ársins 2021 fyrir norsk-íslenska síld, makríl og kolmunna.
Norsk-íslensk vorgotssíld
ICES leggur til í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja að afli ársins 2021 verði ekki meiri en 651 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 526 þúsund tonn og er því um að ræða 24% hækkun í tillögum ráðsins um afla næsta árs. Ástæða þess er fyrst og fremst að 2016 árgangur í stofninum reynist sterkur og gert er ráð fyrir að hann komi inn í veiðina á næsta fiskveiðiári að meiri þunga. Áætlað er að heildarafli ársins 2020 verði um 694 þúsund tonn sem er 32% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð því sett sér aflamark. Það hefur haft þær afleiðingar að frá árinu 2013 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 4-42% á ári.
Upplýsingar um ráðgjöfina og forsendur hennar má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar undir flipanum Ráðgjöf og frekari upplýsingar má finna í tækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.
Makríll
ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarks afraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2021 verði ekki meiri en 852 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 922 þúsund tonn og því er um að ræða tæplega 8% lægri ráðgjöf nú. Það skýrist af bæði minnkandi hrygningarstofni og lægra mati á honum nú en á síðasta ári. Lækkun á ráðgjöf hefði orðið meiri ef ekki hefði komið til endurmat og hækkun á veiðihlutfalli viðmiðunarmarka sem ráðgjöfin byggir á.
Áætlað er að heildarafli ársins 2020 verði tæplega 1,1 milljón tonn sem er 18% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr makrílstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð settur sér aflamark, sem hefur haft þær afleiðingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES.
Upplýsingar um ráðgjöfina og forsendur hennar má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar undir flipanum Ráðgjöf og frekari upplýsingar í tækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.
Kolmunni
ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2021 verði ekki meiri en 929 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 1,2 milljón tonn og er því um að ræða 20% lækkun á ráðgjöf frá í fyrra. Ástæðan fyrir lækkun á aflamarki er minnkandi hrygningarstofn sökum lítillar nýliðunar síðustu fjögur ár.
Áætlað er að heildarafli ársins 2020 verði tæplega 1,5 milljón tonn sem er 27% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr kolmunnastofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð settur sér aflamark, sem hefur haft þær afleiðingar að frá árinu 2014 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 16-66% á ári.
Upplýsingar um ráðgjöfina og forsendur hennar má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar undir flipanum Ráðgjöf og frekari upplýsingar ítækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.