RÆKJA Í ARNARFIRÐI

Pandalus borealis


Stofnmatsskýrslur
Birt af

Hafrannsóknastofnun

Birt

7.10.2024

Veiðar

Rækjuveiðar í Arnarfirði hófust á fjórða áratug síðustu aldar. Á árunum 1960-2015 var rækjuafli á milli 100 og 850 tonn nema fiskveiðiárin 2005/2006 og 2006/2007 (Mynd 1) en þá voru rækjuveiðar ekki heimilaðar þar sem vísitala rækju var mjög lág. Frá árinu 1994 hefur aflinn lækkað jafnt og þétt og var aðeins 116 tonn fiskveiðiárið 2016/2017. Engar veiðar voru heimilaðar fiskveiðiárið 2017/2018 en þá var vísitala rækju lág. Frá árinu 2018 hefur aflinn verið á milli 140 og 200 tonn. Afli á sóknareiningu (CPUE) var tiltölulega stöðugur milli 1960 og 1985, en var hærri til aldamóta (Mynd 1). Frá aldamótum hefur afli á sóknareiningu hækkað stöðugt, aðallega vegna aukins þéttleika rækju innst í firðinu.

Mynd 1: Rækja í Arnarfirði. Heildarafli og afli á sóknareiningu.

Aðal veiðisvæðið hefur minnkað og frá árinu 2009 hefur mestu afli verið veiddur á tiltölulega litlu svæði innst í Arnarfirði, þ.e. í Borgarfirði (Mynd 2).

Mynd 2: Rækja í Arnarfirði. Dreifing afla eftir fiskveiðiárum.

Leiðangrar

Frá árinu 1988 hefur verið farið árlega í leiðangur að hausti til að meta stofnstærð rækju í Arnarfirði. Árið 2024 fór stofnmælingin fram 17.-20. september. Teknar voru 22 stöðvar á 52-97 m dýpi. Allar upplýsingar um framkvæmd leiðangursins má finna í handbók verkefnisins (Ingibjörg G. Jónsdóttir 2024).

Á árunum 1988-1996 fannst rækja um allan Arnarfjörð (Mynd 3). Útbreiðslusvæðið minnkaði árið 1997 og frá árinu 2015 hefur rækja aðeins fundist innst í firðinum. Þessar breytingar eru aðallega vegna aukinnar fiskgengdar í firðinum. Árið 2024 fannst rækja eingöngu inn á Borgarfirði (nyrðri fjörðurinn innst í Arnarfirði).

Mynd 3: Rækja í Arnarfirði. Útbreiðsla og magn í stofnmælingu. x sýnir hvar engin rækja fannst.

Vísitölur

Reiknaðar eru fjórar vísitölur til að meta ástand stofnsins: vísitala stofnstærðar, vísitala veiðistofns, kvendýravísitala og vísitala ungrækju. Ungrækja eru allir einstaklingar með skjaldarlengd minni en 13 mm meðan veiðistofn eru allir einstaklingar 15,5 mm og stærri. Einstaklingum frá 13,0-15,5 mm skjaldarlengd er skipt á milli ungrækju og veiðistofns. Kvendýravísitala miðar við öll kvendýr og er það skilgreiningin á hrygningarstofni.

Vísitala stofnstærðar var nokkuð stöðug til ársins 2005 þegar hún lækkaði snögglega (Mynd 4). Frá árinu 2006 hafa vísitölurnar verið lægri en tiltölulega stöðugar en árið 2016 lækkuðu þær og síðan þá hefur vísitala veiðistofns verið rétt fyrir ofan viðmiðunargildi. Viðmiðunargildi (Ilim) er 20 % af meðaltali þriggja hæstu vísitalna úr stofnmælingu. Árið 2017 var vísitala veiðistofns í sögulegu lágmarki og undir viðmiðunargildi, en árin 2018-2024 var hún rétt fyrir ofan viðmiðunargildi. Vísitala ungrækju var lág á árunum 2016-2023 en hækkaði töluvert árið 2024.

Mynd 4: Rækja í Arnarfirði. Heildarstofnsvísitala, veiðistofnsvísitala, kvendýravísitala og vísitala ungrækju. Lárétt lína sýnir varúðarmörk Ilim nálgun á Blim (20% af meðaltali þriggja hæstu vísitalna).

Lengdardreifingar

Frá árinu 2011 hefur meðallengd kvendýra verið lægri og kvendýr ekki náð sömu stærð og áður. Frá árinu 2016 hafa stór kvendýr ekki mælst í Arnarfirði (Mynd 5). Árið 2024 var töluvert af smærri karldýrum samanborið við síðustu ár.

Mynd 5: Rækja í Arnarfirði. Lengdardreifing í stofnmælingu. Svört lína sýnir karldýr og sú rauða kvendýr. Gráa svæðið sýnir meðallengdardreifingu beggja kynja allt rannsóknatímabilið. Athugið mismunandi skala á y-ás.

Magn þorsks og ýsu

Vísitala seiða (0-grúppa) þorsks og ýsu hefur sveiflast óreglulega í gegnum rannsóknatímann. Árið 2024 var vísitala ýsu- og þorskseiða lág. Vísitala ýsu 1 árs og eldri jókst frá 1994 til 2008 en lækkaði til ársins 2014 og hefur sveiflast frá þeim tíma. Árin 2020-2024 voru vísitölur ýsu 1 árs og eldri þær hæstu frá árinu 2011. Vísitala þorsks 1 árs og eldri hefur sveiflast á rannsóknatímabilinu án sýnilegrar leitni en vísitalan árið 2024 var sú þriðja hæsta á tímabilinu (Mynd 6).

Mynd 6: Þorskur og ýsa í Arnarfirði. Vísitölur í stofnmælingu rækju.

Hitastig sjávar

Meðal yfirborðshiti sjávar hækkaði frá 1998 til 2003 og hefur haldist hár síðan þá (Mynd 7). Meðal botnhiti sjávar jókst stöðugt frá 1988 til 2014 en hefur aðeins lækkað og hefur sveiflast milli 1,2 og 1,5°C frá 2015 til 2024.

Mynd 7: Hitastig sjávar. Meðal hitastig í yfirborði (rauð lína) og meðal hitastig við botn (svört lína) í Arnarfirði í stofnmælingu.

Fiskveiðistjórnun

Matvælaráðuneytið ber ábyrgð á og gefur út aflamark fyrir alla nytjastofna við Ísland. Fiskveiðiárið var frá hausti (að lokinni stofnmælingu í september/október) til 30. apríl en árið 2017 var því breytt til 31. ágúst. Leyfilegt aflamark og landaður afli hafa að mestu fylgt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar (Mynd 8).

Mynd 8: Rækja í Arnarfirði. Samanburður á aflamarki, afla og ráðgjöf.

Heimildir

Ingibjörg G. Jónsdóttir 2024. Handbók um stofnmælingu rækju árið 2024. Kver Hafrannsóknastofnunar, KV2024-007.