ÚTHAFSRÆKJA Pandalus borealis

Ráðgjöf 2024/2025

4 537

tonn

Ráðgjöf 2023/2024

5 022

tonn

Breyting á ráðgjöf

-10 %

Birting ráðgjafar: 17. ágúst 2024. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.


Ráðgjöf

Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli hvors fiskveiðiárs 2024/2025 og 2025/2026 verði ekki meiri en 4 537 tonn.

Stofnþróun

Vísitala veiðistofns er yfir aðgerðamörkum (Itrigger) og varúðarmörkum (Ilim) og veiðiálag er fyrir neðan kjörsókn (Fproxy).

0 15 30 45 60 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 Þús. tonn Afli I t r i g g e r I l i m 0 25 50 75 100 1991 1996 2001 2006 2011 2016 2021 Þús. tonn Lífmassavísitala t a r g e t F p r o x y 0.0 0.2 0.4 0.6 0.8 1.0 1.2 1.4 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 Vísitala veiðihlutfalls

Úthafsrækja. Afli, vísitala veiðihlutfalls og vísitala veiðistofns ásamt aðgerðarmörkum (Itrigger), varúðarmörkum (Ilim) og kjörsókn (Fproxy).

Stofnmat og gátmörk

Grunnur ráðgjafar fylgir forskrift Alþjóðahafrannsóknaráðsins fyrir skammlífa stofna þar sem ekki er hægt að beita aldurs-aflagreiningu, en til eru vísitölur sem taldar eru gefa mynd af breytingum í stofnstærð (Category 3 stocks; ICES, 2022).

Lífmassavísitala úthafsrækju, ásamt afla, er notuð til að reikna vísitölu veiðihlutfalls (Fproxy = afli/vísitala). Ráðgjöfin er fengin með því að margfalda síðasta gildi vísitölunnar með markgildi Fproxy.

Úthafsrækja. Útreikningur ráðgjafar.

Horfur

Vísitala ungrækju hefur verið lág frá 2004 og hefur verið í sögulegu lágmarki frá 2015. Árið 2024 fjölgaði yngri karldýrum frá fyrri árum og vísitala ungrækju var sú hæsta sem mælst hefur frá árinu 2015. Stofnvísitalan hefur verið nokkuð stöðug frá árinu 2012 en hefur lækkað frá árinu 2018. Stofnmælingar síðustu ára benda því til að stofninn muni ekki stækka á næstu árum.

Aðrar upplýsingar

Næsta stofnmæling er áætluð í júlí 2026.

Vísitala þorsks í stofnmælingu úthafsrækju hefur verið há frá árinu 2014 og var í hámarki árin 2016–2018. Árið 2024 mældist mesta magn þorsks frá upphafi. Einnig hefur mælst mikið af þorski í stofnmælingu botnfiska að vori (SMB) og hausti (SMH) undanfarin ár. Því er líklegt að afrán á úthafsrækju hafi aukist á undanförnum árum.

Ráðgjöf, aflamark og afli

Úthafsrækja. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).

Heimildir og ítarefni

ICES. 2022. ICES technical guidance for harvest control rules and stock assessments for stocks in categories 2 and 3. In Report of ICES Advisory Committee, 2022. ICES Advice 2022, Section 16.4.11. (https://doi.org/10.17895/ices.advice.19801564).

Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2024. Úthafsrækja. Hafrannsóknastofnun, 24. ágúst 2024.