ÝSA Melanogrammus aeglefinus
Birting ráðgjafar: 7. júní 2024. Útgefið af Hafrannsóknastofnun.
Ráðgjöf
Hafrannsóknastofnun og Alþjóðahafrannsóknaráðið leggja til, í samræmi við aflareglu íslenskra stjórnvalda, að afli fiskveiðiárið 2024/2025 verði ekki meiri en 76 774 tonn.
Stofnþróun
Veiðiálag er yfir kjörsókn (HRMSY) og gátmörkum (HRpa) en undir varúðarmörkum (HRlim). Stærð hrygningarstofns er yfir aðgerðarmörkum (MSY Btrigger), gátmörkum (Bpa) og varúðarmörkum (Blim).
Ýsa. Afli eftir veiðarfærum, nýliðun, veiðihlutfall og veiðidánartala, stærð viðmiðunarstofns (B45+ cm) og hrygningarstofns. Skyggð svæði og öryggisbil sýna 95 % öryggismörk.
Stofnmat og Gátmörk
Horfur
Ýsa. Forsendur fyrir stofnmatsárið og í framreikningum.
Ýsa. Áætluð þróun stofnstærðar hrygningarstofns (tonn) miðað við veiðar samkvæmt aflareglu.
Gæði stofnmats
Samræmi þessa stofnmats við stofnmat fyrri ára er talið viðunandi, þrátt fyrir vanmat á hrygningarstofni og ofmat á veiðihlutfalli undanfarin ár.
Ýsa. Núverandi stofnmat (rauð lína) borið saman við stofnmat áranna 2020–2023
Aðrar upplýsingar
Ýsuafli seinustu ára hefur verið yfir ráðlögðum heildarafla sem hefur valdið því að veiðihlutfallið hefur haldist yfir HRpa.
Ráðgjöf, aflamark og afli
Ýsa. Tillögur um hámarksafla, ákvörðun stjórnvalda um aflamark og afli (tonn).
Heimildir og ítarefni
ICES. 2019. Workshop on the benchmark assessment and management plan evaluation for Icelandic haddock and saithe (WKICEMSE). ICES Scientific Reports. 1:10. 107 pp. http://doi.org/10.17895/ices.pub.5091
MFRI Assessment Reports 2024. Haddock. Marine and Freshwater Research Institute, 7 June 2024.
Stofnmatsskýrslur Hafrannsóknastofnunar 2024. Ýsa. Hafrannsóknastofnun, 7. júní 2024.